Gulrótar-Hrísgrjónabrauð
HRÍSGRJÓNA-
GULRÓTARBRAUÐ
Bökuð 5 daga í viku
mánudaga-föstudaga
Innihald:
Hrísmjöl, vatn, gulrætur, sólblómafræ, hirsi, súrdeig, krydd, salt.
Við notum nýmöluð hýðishrísgrjón í brauðin og soðið heilt hirsi. Glútenlausu brauðin eru þétt í sér og gott að skera þau í frekar þunnar sneiðar. Það er notað örlítið af kryddi í deigið, blanda af kúmeni, fennel og kóriander. Gulrótarbrauðin eru vinsælustu glútenlausu brauðin hjá okkur.
-nánar um framleiðslu á glútenlausum brauðum >
Þyngd: 600 gr
Bakstur:
Bökuð í stálformi með loki við 240°C í um 90 mínútur
Geymsla:
Brauðin hafa um 5 daga geymsluþol við stofuhita.
Næringarinnihald í 100 g,
u.þ.b.
orka 931 kjoul
- 223 kkal
prótein 5,1 g
kolvetni 43,0 g
þ.a. sykurteg. 0,6 g
fita 2,8 g þ.a.mettuð 0,4
trefjar 1,7 g
salt 1 g